Hvernig smitast þetta?
Þetta smitast auðveldlega við kynlíf, og við að snerta sýkt kynsvæði.
Konur sem eru hrjáðar af HPV eiga að ræða við kynsjúkdómasérfræðing, þar sem veiran getur stuðlað að vexti krabbameinsfruma í leghálsi. Aðrar tegundir HPV geta leitt til leghálskrabba.
Regluleg stroksýnispróf hjálpa til við að greina þetta og geta komið í veg fyrir þróun leghálskrabba.
Hver eru einkennin?
Flestir fá ekki sýnilegar vörtur og veiran hverfur án íhlutunar.
Þeir sem fá vörtur, fá lítil holdug útbrot á húðina, hvar sem er á líkamanum. Stundum fylgir kláði og sviði við kynfærin.
Hvernig losna ég við þetta?
Þó að hægt sé að lækna kynfæravörtur getur tekið langan tíma að losna við þær.
Boðið er upp á margar mismunandi meðferðir, t.d.:
· Meðferð með leysi
· Frystingu
· Skurðaðgerð
· Lyfseðilskyld lyf – krem eða vökva
Báðir aðilar eiga alltaf að fara í meðferð.
Til að hjálpa til að koma í veg fyrir þetta – notaðu þá smokk!
*HPV smitast ekki í gegnum smokk, en smokkar þekja ekki öll kynfærin, svo það er hægt að smita húðina í kring.